Fjölmennur aðalfundur Orkuklasns  – Sigurður Atli Jónsson kjörinn nýr formaður

28.05.2025

Spennandi tímar framundan í herbúðum Orkuklasans

Fjölmennur aðalfundur Orkuklasns  – Sigurður Atli Jónsson kjörinn nýr formaður

Aðalfundur Orkuklasans fór fram í morgun í húsakynnum Verkís. Fundurinn var vel sóttur af aðildarfélögum vettvangsins sem koma úr allri virðiskeðju orkutengdrar starfsemi. Fundurinn markaði tímamót þar sem farið var yfir helstu verkefni síðasta árs, áherslur komandi missera og framtíðarsýn klasavettvangsins.

Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála, setti fundinn með ávarpi þar sem hann lagði áherslu á mikilvægi samstarfs og nýsköpunar við umbreytingu orkukerfisins. Hann þakkaði Orkuklasanum fyrir öflugt samstarf við að styðja við framþróun í orkumálum og efla samkeppnishæfni greinarinnar.

Framkvæmdastjóri Orkuklasans, Rósbjörg Jónsdóttir fór yfir stöðu og framtíð klasans og sýndi með skýrum hætti hversu áhrifaríkt samstarf innan vettvangsins er orðið.

Ársskýrsla vettvangsins er nú aðgengileg – ársskýrsla 2024. þar má lesa um árangursríkt samstarf síðasta árs og yfirlit yfir þau metnaðarfullu verkefni sem eru fram undan.

Á fundinum var kosin ný stjórn og var Sigurður Atli Jónsson forstjóri Arctic Europe**,** kjörinn nýr formaður Orkuklasans 2025-2027. Hann tekur við keflinu af Árna Magnússyni, sem hefur gegnt formennsku með miklum metnaði frá 2021 og leitt mikilvægt starf við að styrkja samkeppnishæfni og samstarf innan orkugeirans um árabil.

„Það ríkir mikil samstaða um mikilvægi þess að vinna saman þvert á greinar og nýta klasahugmyndafræðina sem afl til framfara. Við horfum til áskorana framtíðarinnar með lausnamiðaða sýn og einbeitingu á nýsköpun, sjálfbærni og alþjóðlega samkeppnishæfni,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu fundarins.

Orkuklasinn mun áfram halda áfram að leiða áhrifarík verkefni á árinu með áherslu á aukið samstarf, þekkingarmiðlun, fjárfestingar og stuðning við umbreytingu orkukerfisins á sjálfbæran hátt.

Fulltrúar nýrrar stjórnar Orkuklasans eru:

Formaður : Sigurður Atli Jónsson, Arctic Europe
Varaformaður : Kristín Steinunnardóttir, COWI

·         Birna Bragadóttir (Orkuveitan) / Helga Dögg Flosadóttir (Atmonia)

·         Birta Kristin Helgadóttir (Efla) / Daði Þorbjörnsson (ISOR)

·         Carine Chatenay (Verkís) / Þorvaldur Jakobsson (Landsnet)

·         Haraldur Hallgrímsson (LV) / Björk Þórarinsdóttir (HS Orku)

·         Kristín Soffía Jónsdóttir (RARIK) / Sigurður Sigurðsson (Jarðboranir)

·         Pétur Heide (Arion banki) / Þorvaldur Tolli Ásgeirsson (HD)

Frekari upplýsingar: Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri