Orkuklasinn á IIW 2025 - Iceland Innovation Week kk2025

16.05.2025

Nýsköpun, samvinna og áhrif – Orkuklasinn á Nýsköpunarviku Íslands 2025

Nýsköpun, samvinna og áhrif – Orkuklasinn á Iceland Innovation Week 2025

Frábær vika að baki!

Orkuklasinn tók virkan þátt í Iceland Innovation Week sem haldin var í Reykjavík dagana 13.–15. maí og átti öfluga og sýnilega þátttöku alla vikuna.

Hliðarviðburður okkar, var haldinn í samstarfi við COWI á Íslandi. Fullur salur og líflegar umræður umræður um hvernig nýsköpun knýr framtíð orkuiðnaðarins. En kastljósinu var varpað sérstaklega á jarðvarmann og rafeldsneyti. Áskoranirnar eru margvíslegar og verkin ærin en skilaboðin voru skýr:  Nýsköpun  í hvaða formi sem er, verður ekki til  ein og sér  – hún krefst samvinnu, þekkingarmiðlunar og sameiginlegra aðgerða. Orkuklasinn kynnti grunn að vinnu sem staðið hefur yfir þar sem nýsköpunarkort greinarinnar var skoðað, hvað höfum við, hvað vantar okkur og hvernig getum við haldið áfram.
Spennandi verkefni og mikilvægt sem nýtt verður til ferkari átaksverkefna Orkuklasans.

Við þökkum öllum sem tóku þátt, komu við hjá okkur á sýningarsvæðinu og áttu samtöl við okkur – við eigum nú í fjölmörgum spennandi samskiptum og ný tengsl eru þegar farin að bera ávöxt.

Þátttakendur voru:

Christopher Wynne-Joyce, IREC
Kristín Steinunnardóttir, from COWI
Katrín Ragnarsdóttir, from COWI
Sigurdur H Markusson, from @Orkuveitan
Björn Guðmundsson Krafla Magma Testbed (KMT)
@Jón Björn Skúlason from @Íslensk Nýorka 
Helga Dögg Flosadóttir from @Atmonia
Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir, from KPMG Ísland
Brynjolfur Stefansson from Íslandssjóðir hf. | Iceland Funds Ltd.
Rósbjörg Jónsdóttir, IREC

Það var okkur einnig heiður að taka þátt í glæsilegri kvöldverðarboði hjá @Bold Community í Norræna húsinu, þar sem við kynntumst áhrifamiklum fyrirlesurum og fengum innsýn í þeirra innblástur og vegferð.

Einn af hápunktum vikunnar var kraftmikil og hugrökk leiksýningin „Ok, bye!“ sem fjallaði á áhrifaríkan hátt um loftslagsáskoranir samtímans.

Kærar þakkir til allra sem tóku þátt og gerðu þessa viku einstaka.
Sérstakar þakkir til frábæra teymisins á bak við Iceland Innovation Week fyrir metnaðarfulla og faglega framkvæmd.

Höldum áfram á þessari braut – saman nýtum við kraftinn til að móta framtíðina.